Í hádeginu í dag var dregið í riðla í átta liða úrslitum í Bridgestone- bikarkeppni Blaksambands Íslands, en leikið verður í Fylkishöllinni síðustu helgina í nóvember og fara sigurvegarar riðlanna beint í undanúrslit. Hjá körlunum lentu KA- menn með HK, Stjörnunni og Þrótti Neskaupsstað í riðli. Hjá konunum drógst KA með HK, Þrótti Reykjavík og Skautum.
Riðlarnir líta þannig út:
A-riðill karla:
Þróttur Reykjavík, Hrunamenn, Hamar, UMFG.
B-riðill karla:
KA, HK, Stjarnan, Þróttur Nes.
A-riðill kvenna:
HK, KA, Þróttur Reykjavík, Skautar.
B-riðill kvenna:
Þróttur Nes, Fylkir, Álftanes, Stjarnan, Ýmir.
Úrslitahelgi Bridgestone-bikarsins verður svo haldinn í Laugardalshöllinni 13.-14. mars næstkomandi, þar sem undanúrslitin verða á laugardegi og úrslit á sunnudegi.