DJÄSS heldur tónleika á Norðurlandi

Tríóið DJÄSS heldur áfram tónleikaferðalagi sínu um landið og nú er röðin komin að Horðurlandinu.

Tríóið mun halda tónleika í Minjasafninu á Akureyri föstudaginn 27.maí kl.17.00 og í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík kl.20.00 en þessi tónleikaröð endar síðan á Jazz Baltica hátíðinni í Þýskalandi þann 25.júní.

Tríóið hefur skapað sér nafn og sérstöðu á íslensku tónlistarsenunni með skemmtilegum og frumlegum útsetningum á íslenskum rokk-, punk- og dægurlögum. Árið 2011 kom út platan "Songs from the top of the world" sem náði gífurlegum vinsældum og er enn að seljast.

"We ride Polar Bears" kom út árið 2015 og var beint framhald af fyrri plötunni og hlaut mjög góðar viðtökur, en þar mátti einnig heyra auk þekktra íslenskra laga, þekkt erlend lög og tvö frumsamin, en á plötunni "DJÄSS" sem nýlega kom út er eingöngu frumsamið efni.

Á efnisskrá tónleikanna munu lög af seinustu plötu þeirra félaga verða nokkuð áberandi, en einnig hljóma lög af fyrri plötum sem og nýtt efni sem ekki hefur heyrst á tónleikum hjá þeim áður. Tónleikarnir hefjast kl.17.00 og er miðasala við innganginn. 


Athugasemdir

Nýjast