Starfsmaður Dekkjahallarinnar á Akureyri greindist með Covid-19 í gærkvöld. Meðan unnið er að smitrakningu hefur verkstæðinu verið lokað. Greint er frá þessu á vef Rúv. Starfsmaðurinn sem um ræðir var við vinnu á mánudag og þriðjudag áður en hann fann fyrir einkennum í gær. Hann fór í framhaldið í skimun sem gaf jákvæða niðurstöðu í gærkvöldi.
Elín Dögg Gunnarsdóttir, fjármálastjóri fyrirtækisins, segir í samtali við Rúv að eftir ráðfæringar við yfirvöld hafi verið ákveðið að loka fyrirtækinu tímabundið.
KEA og Drift EA hafa gert með sér samkomulag sem miðar að því að efla frumkvöðlastarf, nýsköpun og uppbyggingu nýrra fyrirtækja á Norðurlandi. Með samkomulaginu gerist KEA bakhjarl Driftar EA og tekur þar með virkan þátt í að styrkja stuðningsumhverfi sprota- og vaxtafyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu. Sterkir heimaaðilar koma nú saman að því að styðja við þessa mikilvægu umgjörð.
Núna á vorönn er byggingadeild VMA í samstarfi við byggingaverktakann Húsheild-Hyrnu á Akureyri um að gefa nemendum innsýn í glugga- og hurðasmíði á afar vel búnu verkstæði fyrirtækisins. Nemendur á öðru ári hafa farið í heimsókn á verkstæðið, 3-5 í senn, og fengið að fylgjast með og taka þátt í að smíði glugga. Í þessu felst m.a. niðurefnun gluggaefnisins, stilling tölvustýrðs vélbúnaðar, fræsingar, samsetning, lökkun, glerjun og lamasetning
Háskólinn á Akureyri leiðir nýtt alþjóðlegt samstarfsverkefni, Next GEN Tourism, sem hlotið hefur 250.000 evra styrk úr Erasmus+ áætluninni til næstu tveggja ára. Verkefnið miðar að því að styrkja getu og þekkingu lítilla og meðalstórra ferðaþjónustufyrirtækja til að takast á við kynslóðaskipti og tryggja áframhaldandi rekstur þeirra til framtíðar. Verkefnastjóri er Verena Karlsdóttir, lektor hjá Viðskiptadeild.
Hagkaup bauð upp á fermingarkvöld í versluninni í Smáralind í fjórða sinn Í síðastliðinni viku til þess að kynna unglingunum ýmislegt áhugavert fyrir fermingardaginn þeirra, svo sem að fræða þau um húðumhirðu.
„Þetta er ein stærsta stundin í lífi i okkar Þórsara, við getum nú litið björtum augum fram á veginn,“ sagði Nói Björnsson formaður Íþróttafélagsins Þórs þegar samkomulag um uppbyggingu íþróttamiðstöðvar á félagssvæði íþróttafélagsins Þórs var undirritað á dögunum. Með samkomulaginu er sett af stað vinna við hönnun á íþróttamiðstöð á félagssvæði Þórs og í kjölfarið gerður samningur um fyrirhugaða uppbyggingu þar sem fram kemur nákvæm áætlun um verkefnið.