Danssýning í Hofi til styrktar börnum og læknum í Úkraínu

Menningarhúsið Hof á Akureyri. Mynd/Auðunn Níelsson.
Menningarhúsið Hof á Akureyri. Mynd/Auðunn Níelsson.

Á morgun 28. júní kl. 18 verður boðið upp á danssýningu í Menningarhúsinu Hofi til styrktar börnum og læknum í Úkraínu. Sýningin er öllum opin og hentar sérstaklega vel fjölskyldum og börnum.

Dansýning fyrir Úkraínu

Skipuleggjendur eru dansarinn Alona Perepelytsia, fjölskylda hennar og flóttamenn frá Úkraínu. Hópurinn hefur þegar sýnt á Austurlandi og hyggst sýna nokkrum stöðum á landinu og nú eru þau mætt til Akureyrar í tengslum við Listasumar.

Á Íslandi búa nú margir skapandi einstaklingar frá Úkraínu og hópurinn sem stendur að sýningunni vildi finna leið til að aðstoða samlanda sína í heimalandinu og um leið að þakka íslensku þjóðinni fyrir einlægar móttökur á flóttafólki þaðan. Allt listafólkið gefur vinnu sína sem framlag til söfnunarinnar.

Sýningin hefst kl. 18 í Hamraborg - enginn aðgangseyrir en teki verður á móti frjálsum framlögum við innganginn. Þeir sem vilja styrkja söfnunina geta einnig  gert það með því að leggja inn á söfnunarreikning hópsins:

Kennitala: 310391-3369

Reikningsnúmer: 0569-26-003103

Viðburðurinn er 1 klukkustund að lengd

Viðburðurinn er hluti af Listasumri og styrktur af Akureyrarbæ í samvinnu við Menningarhúsið Hof.


Athugasemdir

Nýjast