Dalvík/Reynir vann nágrannaslaginn

Dalvík/Reynir hafði betur í nágrannaslagnum við Draupni er liðin mættust í gærkvöld á Dalvíkurvelli í D- riðli 3. deildar karla í knattspyrnu. Lokatölur urðu 3-2 sigur Dalvíks/Reynis.

Mörk heimamanna skoruðu þeir Guðmundur Kristinn Kristinsson ( víti, 10. mín ), Hermann Albertsson ( 15. mín ) og Snorri Eldjárn ( 93. mín ). Mörk Draupnis skoruðu þeir Jón Stefán Jónsson ( 25. mín ) og Egill Ármann Kristinsson ( 60. mín ).

Eftir níu umferðir er Draupnir í neðsta sæti riðilsins með fjögur stig en Dalvík/Reynir er í þriðja sæti með 16 stig.


Nýjast