Dalvíkingar segja Vegagerðina mismuna íbúum dalanna

Frá Dalvík.
Frá Dalvík.

Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar fagnar því að Vegagerðin sjái nauðsyn til þess að auka við snjómokstur í Svarfaðardal, en ráðið furðar sig hins vegar á því í hverju aukningin á snjómokstri er fólgin. Í fundargerð Umhverfisráðs segir að hún muni ekki nýtast öllum íbúum í Svarfaðar-og Skíðadal.

„Það er með hreinum ólíkindum að Vegagerðin skuli leyfa sér að mismuna íbúum dalanna um umferðaröryggi eftir því hvar þeir búa. Það fer skólabíll í báða dalina alla virka daga og einnig sækja íbúar þar vinnu til Dalvíkur. Í báðum dölunum eru ferðaþjónustufyrirtæki sem þurfa á góðri vetrarþjónustu að halda. Einnig má geta þess að á þeirri leið sem Vegagerðin leggur til að aukin þjónusta verði, eru einungis tvö af tólf mjólkurbúum í dölunum og sækir mjólkurbíllinn mjólk á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum.

Umhverfisráð gerir kröfu um að í fyrirhuguðu snjómoksturútboði verði gert ráð fyrir sjö daga þjónustu í Svarfaðardal og Skíðadal og búið verði að moka áður en skólabíllinn kemur kl. 07:30. Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar skorar á þingmenn kjördæmisins, Samgönguráðherra og Vegamálastjóra að beita sér fyrir ofangreindum tillögum ráðsins,“ segir í fundargerð.

Bókunin var samþykkt samhljóða.

Nýjast