Nýr sýslumaður á Akureyri

Ásdís Ármannsdóttir á skrifstofunni á Siglufirði
Ásdís Ármannsdóttir á skrifstofunni á Siglufirði

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur falið Ásdísi Ármannsdóttur sýslumanni á Siglufirði að gegna embætti sýslumanns á Akureyri til eins árs. Björn Jósef Arnviðarson fráfarandi sýslumaður lætur af störfum um áramótin en hann verður 67 ára á þessu ári.

 „Þetta er spennandi starf, sem ég hlakka til að takast á við. Verkefnin eru að mörgu leyti þau sömu en embættið á Akureyri er að sjálfsögðu mun stærra, auk þess sem sýslumaðurinn á Akureyri fer með lögreglustjórn í umdæminu,“ segir Ásdís.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast