Kirkjutröppurnar á Akureyri ekki lengur upphitaðar
Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa ákveðið að hætta að hita upp kirkjutröppurnar og sjá starfsmenn bæjarins um að handmoka tröppurnar, þegar þess gerist þörf. Vatnið í lagnakerfinu undir tröppunum er hitað upp með rafmagni. Samkvæmt upplýsingum Vikudags var nýverið skipt um búnað sem mælir rafmagnsnotkunina og kom þá í ljós að sá gamli sýndi of litla rafmagnsnotkun við upphitunina. Eftir að nýr búnaður var settur upp, hækkaði kostnaðurinn við að hita upp vatnið í kerfinu um milljónir króna. Því hafi verið ákveðið að handmoka tröppurnar og spara þannig fjármuni.
Ekki eru allir sáttir við þessa ákvörðun bæjaryfirvalda. Aðilar í ferðajónustu benda á að um sé að ræða eitt helsta kennileiti bæjarins. Furðu sæti að handmoka þurfi tröppurnar, þegar hitakerfi geti séð um að halda þeim vel færum.
karleskil@vikudagur.is