Haldið upp á 250 ára afmæli Hóladómkirkju á Hólahátíð

Hólahátíð verður haldin um næstu helgi.Í ár eru liðin 250 ár frá byggingu Hóladómkirkju sem er elsta steinkirkja landsins. Á hátíðinni verður opnuð sýning um kirkjubygginguna, flutt leikrit um múrarameistarann Sabinsky, gengin pílagrímaganga yfir Heljardalsheiði, messað í Gvendarskál og gengið upp í Námuna. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, prédikar í hátíðarmessu á Hólahátíð, Kristján Jóhannson syngur einsöng, Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst flytur Hólaræðuna og Hjörtur Pálsson flytur frumsamið afmælisljóð.

Þetta er fyrsta Hólahátíðin sem Solveig Lára Guðmundsdóttir, nýr vígslubiskup á Hólum kemur að. Hún segir að það sé mikil áskorun að fyrsta Hólahátíðin hennar skuli vera afmælishátíð, en Hólanefnd hefur staðið að öllum undirbúningi hátíðarinnar og það hefur verið mjög skemmtilegt að starfa með henni að undirbúningum.

Hóladómkirkja 250 ára

Hóladómkirkja er elsta steinkirkja landsins. Hún var vígð 20. nóvember árið 1763 og er því 250 ára í ár. Þessa verður minnst með veglegri dagskrá þar sem  saga kirkjubyggingarinnar verður skoðuð frá ýmsum sjónarhornum. 

Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og einn helsti sérfræðingur okkar á sviði kirkjubyggingarlistar og Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor hafa tekið saman sýningu um kirkjubygginguna. Hún verður opnuð á föstudagskvöldi.  Á laugardag verður frumsýnt nýtt leikrit um Sabinsky múrarameistara sem byggði kirkjuna.  Leikritið skrifaði Björg Baldursdóttir kennari við Grunnskólann á Hólum.  Félagar úr Leikfélagi Hofsóss leika undir stjórn Maríu Grétu Ólafsdóttur

Pílagrímaganga og messa í Gvendarskál

Á laugardeginum á Hólahátíð verður gengið upp í Gvendarskál þar sungin verður messa, gengið verður að námunni þar sem rauði sandsteinninn var tekinn og gengin verður pílagrímaganga yfir Heljardalsheiði.  Auk þess gefst fólki kostur á að vinna með sandsteininn við Auðunarstofu undir leiðsögn Viðars Sverrissonar.

Hátíðarmessa, veislukaffi og samkoma

Hátíðamessa verður á sunnudag kl. 14:00 þar sem Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, mun predika. Í messunni mun Kristján Jóhannsson syngja einsöng.  Eftir veislukaffi í Háskólanum verður samkoma í kirkjunni þar sem Kristján Jóhannsson syngur og sr. Hjörtur Pálsson flytur frumsamið afmælisljóð um kirkjuna. Ræðumaður verður Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bifröst.

Nýjast