Dagskráin 45 ára
Afmælisbarnið ber aldurinn mjög vel, enda hefur blaðið stækkað og dafnað nokkuð hressilega á þessum árum, segir G. Ómar Pétursson framkvæmdastjóri Ásprents á Akureyri. Sjónvarpsútsendingar hófust á Akureyri 1. desember 1968 og 22 dögum síðar kom út fyrsta tölublaðið af Sjónvarpsdagskránni. Síðan þá hefur Dagskráin komið út í hverjum miðvikudegi. Auglýsingar þekja flestar blaðsíður, en dagskrár sjónvarpsstöðvanna er að sjálfsögðu að finna í blaðinu, rétt eins og í upphafi.
Kúba sjónvörp
Fyrsta blaðið var fjórar síður og í svart/hvítu, eins og sjónvarpsútsending Ríkisútvarpsins. Á forsíðu fyrsta blaðsins var auglýsing frá Sjónvarpsbúðinni í Hafnarstræti 86 hérna á Akureyri um Kúba sjónvarpstæki, enda vildu sjálfsagt flestir eignast sjónvarp á þessum tíma.
G. Ómar segir að Dagskráin sé í dag á bilinu 96 til 144 síður að stærð og dreift víðast hvar á Norðurlandi eystra.
Með auglýsingum fá lesendur til dæmis upplýsingar um helstu menningarviðburði, tilboð í verslunum og svo framvegis. Fasteignasalar, veitingastaðir og bíóin hafa sömuleiðis nýtt sér þjónustu okkar, svo dæmi sé tekið og auðvitað eru dagskrár sjónvarpsstöðvanna á sínum stað í blaðinu.
Mikill lestur
Samkvæmt mælingum Capacent Gallup lesa 98 % kvenna á svæðinu blaðið og 92 % karla. Það eru ekki mörg blöð sem geta státað sig af slíkum tölum, sem staðfesta jafnframt mikið traust lesenda í okkar garð. Fyrir það erum við auðvitað óskaplega þakklát.