Alþjóðlegir vetrarleikar í Hlíðarfjalli

Í byrjun mars verða haldnir alþjóðlegir vetrarleikar (Iceland Winter Games) á skíðum og snjóbrettum í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar. Mótið verður árlegt og er haldið í starfi við Norwegian Open sem er sambærilegt stórmót í Noregi. Keppt verður í ýmsum greinum frjálsra skíðaíþrótta (freeskiing) og á snjóbrettum. Stefnt er að því að fyrsta árið verði keppendur um 100 frá Norðurlöndunum, einkum Noregi, Svíþjóð og Íslandi, en að í nánustu framtíð verði keppendur ríflega eitt þúsund og þá teygi mótið sig einnig yfir á skíðasvæðin á Dalvík og Siglufirði.

 

Fyrirmynd Iceland Winter Games er áðurnefnt Norwegian Open mót sem hefur notið gríðarlegra vinsælda síðan það var fyrst haldið árið 2009 og stækkað ár frá ári. Mótið er nú hluti AFP-sambandsins (afpworldtour.com) sem heldur utan um mótaraðir í freeskiing og er eins konar regnhlífarsamtök atvinnumanna í íþróttinni.

 

Davíð Rúnar Gunnarsson hjá Viðurðastofu Norðurlands, sem skipuleggur Iceland Winter Games í samvinnu við ýmsa aðila í ferðaþjónustu á Norðurlandi, segir í tilkynningu að markmiðið sé að gera þetta risamót í Hlíðarfjalli eitt af þeim bestu í Evrópu.

Nýjast