Aflið verður sýnilegt á Einni með öllu

Undanfarin ár hefur fjölskylduhátíðin Ein með öllu fest sig í sessi meðal bæjarbúa og gesta. Hátíðin hefur farið vel fram í góðri samvinnu Vina Akureyrar við fjölda aðila og samtaka og má þar meðal annars nefna Aflið - samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi en þau hafa verið starfandi á Akureyri síðan 2003.   

Aflið, Vinir Akureyrar og Akureyrarbær hafa tekið höndum saman um að styrkja samstarfið á Einni með öllu um verslunarmannahelgina enn frekar. Það felst í því að Aflið mun vera enn sýnilegra en áður með því að hafa bækistöð í miðbæ Akureyrar. Þar mun vera vettvangur fyrir þá sem þurfa að leita til Aflsins, auk þess sem samtökin munu selja þar armböndin „segðu frá“. Skipuleggjendur hátíðarinnar eru einnig í samstarfi við Samfélags-og mannréttindardeild Akureyrar og er tilgangurinn sá að unnið sé í samræmi við forvarnastefnu bæjarins. Mikið er lagt upp úr því að hátíðin sé fjölskylduhátíð og að dagskráin höfði til allra aldurshópa.
 

Það er von skipuleggjenda að bæjarbúar og gestir fjölskylduhátíðarinnar Ein með öllu verði samtaka í að njóta dagskrárinnar og leggja sitt af mörkum við að láta hátíðina ganga vel, svo verslunarmannahelgin skilji eftir góðar minningar, segir í tilkynningu.

 

Nýjast