Maðurinn sem handtekinn var á Svalbarðseyri í gærmorgun hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á mánudag, 23.júlí. Farið var fram á gæsluvarðhald yfir manninum í morgun og féllst Héraðsdómur Norðurlands eystra á gæsluvarðshaldskröfu lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Rannsókn málsins hefur m.a. leitt í ljós að hann ógnaði a.m.k. tveimur mönnum með s.k. pinnabyssu, sem er skammbyssa notuð til að aflífa stórgripi. Byssuna er hann grunaður um að hafa tekið ófrjálsri hendi í húsi á Svalbarðseyri. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er einnig grunaður um önnur þjófnaðarbrot og eru þau mál til rannsóknar. Þetta kemur fram á facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.