Byggja við flugstöðina og stækka flughlaðið

Séð yfir Akureyrarflugvöll. Mynd/Hörður Geirsson.
Séð yfir Akureyrarflugvöll. Mynd/Hörður Geirsson.

Nauðsynlegt er að byggja við flugstöðina á Akureyrarflugvelli til að geta veitt viðunandi þjónustu samtímis fyrir millilanda- og innanlandsflug. Þetta eru niðurstöður skýrslu aðgerðahóps sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði til að meta þörf fyrir aðstöðu og þjónustu í flugstöð á Akureyrarflugvelli og er greint er frá vef Stjórnarráðsins. Hópurinn telur núverandi flugstöð vera of litla og aðstöðu ófullnægjandi til að sinna hlutverki sínu til framtíðar. Lagt er til að ráðist verði í hönnun 1.000 m2 viðbyggingar svo hægt verði að afgreiða allt að 220 sæta millilandavél á innan við klukkutíma samhliða 70 sæta innanlandsvél. Í skýrslunni er gert ráð viðbyggingu við núverandi flugstöð og að hönnun hennar verði sveigjanleg til að hægt verði að stækka bygginguna eða breyta nýtingu einstakra svæða.

Kostar 900 milljónir

Kostnaður er áætlaður um 900 m.kr. og lagt er til að þegar í stað verði ráðist í hönnun, færslu olíutanka og jarðvinnu þannig að byggingarframkvæmdir geti hafist strax að hönnun lokinni. Áætlað er að við framkvæmdir við viðbygginguna verði til um 50 ársverk. „Það er ánægjulegt að geta stigið mikilvægt og myndarlegt skref að frekari uppbyggingu á Akureyrarflugvelli sem gátt inn til landsins. Hafist verður handa við hönnun og síðar stækkun á flugstöðinni á Akureyri innan skamms. Tími fjárfestinga er núna og fyrir Norður- og Austurland skiptir öllu máli að vera vel í stakk búinn til að taka á móti ferðamönnum þegar Covid-tímabilið er afstaðið,“ er haft eftir Sigurði Inga Jóhannsseni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Sigurður Ingi segir að á síðustu árum hafi verið unnið að því að efla Akureyrarflugvöll og að lenging flugbrautarinnar hafi verið fyrsta skrefið. Árið 2018 hafi síðan verið tryggt fjármagn fyrir aðflugsbúnað, ILS, sem þegar hafi sannað gildi sitt.

90 störf vegna framkvæmda á Akureyrarflugvelli

Samhliða stækkun á flugstöðinni verður flughlaðið á Akureyrarflugvelli stækkað til að koma á móts við aukin umsvif og öryggi vallarins. Áætlað er að við báðar þessar framkvæmdirnar verði til um 90 ársverk, í hönnunar- og verktakavinnu að sögn Sigurðar Inga.

 


Athugasemdir

Nýjast