Bygging á nýrri flugstöð boðin út

Líkan af nýrri flugstöð. Mynd/Isavia.is
Líkan af nýrri flugstöð. Mynd/Isavia.is
Isavia hefur óskað eftir tilboðum í 1.100 fermetra viðbyggingu við flugstöðina á Akureyrarflugvelli ásamt breytingum á núverandi flugstöð og nánasta umhverfi. Áætlað er að opna tilboð í byggingu flugstöðvar í ágúst.
 
Greint er frá þessu á vef Rúv.
 
„Viðbyggingin er stálgrindarhús, klætt einingum með stórum gluggum sem hleypa inn náttúrulegri birtu og útsýni yfir fjörðinn,“ segir meðal annars í útboðsgögnum. Að byggingu lokinni verður þar settur upp flugvallabúnaður, færibönd fyrir farangur og fleira. Sá þáttur framkvæmda er ekki hluti af verkefnum verktakans, en hann skal aðlaga húsnæðið að viðeigandi búnaði.

 

Fyrsta skóflustunga að nýrri flugstöð var tekin þann 16. júní.


Athugasemdir

Nýjast