Byggðarráð Norðurþings skorar á dómsmálaráðherra að hætta við lokun fangelsisins á Akureyri

Stjórnsýsluhús Norðurþings á Húsavík. Mynd/epe
Stjórnsýsluhús Norðurþings á Húsavík. Mynd/epe

Á fundi byggðarráðs Norðurþings í morgun var rætt um ákvörðun Fangelsisstofnunar að loka fangelsinu á Akureyri án nokkurs samráðs við sveitarstjórnir á Norðurlandi eystra. Í bókun ráðsins er ákvörðuninni harðlega mótmælt og dómsmálaráðherra er hvattur til að snúa henni.

Bent er á að samlegðaráhrif í starfi lögreglunnar á Norðurlandi eystra og fangelsisins á Akureyri séu og hafi um áratugaskeið verið afar mikil. Þá er bent á það að ef ekki verði hætt við að loka fangelsinu muni það kalla á stóraukið fjármagn til löggæslu á Norðurlandi eystra. Byggðarráð telur með öllu ólíðandi að Fangelsismálastofnun geti í trássi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda í byggðamálum og án samráðs við sveitarstjórnir á svæðinu tekið slíka ákvörðun um að flytja 5 störf af landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið. Ráðið skorar á dómsmálaráðherra að afturkalla ákvörðunina.

Bókun byggðarráðs má lesa í heild sinni hér að neðan:

 

Byggðarráð mun afla sér frekari upplýsinga og taka málið aftur fyrir að viku liðinni.

Byggðarráð Norðurþings mótmælir þeirri ákvörðun Fangelsismálastofnunar að loka fangelsinu á Akureyri án nokkurs samráðs við sveitarstjórnir á Norðurlandi eystra. Yfirlýst stefna stjórnvalda hefur verið að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni og því skýtur það skökku við að fangelsismálayfirvöld taki einhliða og án nokkurs fyrirvara ákvörðun um að loka fangelsinu á Akureyri og leggja þar með niður 5 störf. Byggðarráð krefst þess að stjórnvöld grípi tafarlaust í taumana og ógildi þessa ákvörðun.
Samlegðaráhrif í starfi lögreglunnar á Norðurlandi eystra og fangelsisins á Akureyri eru og hafa um áratugaskeið verið afar mikil. Fangaverðir á vegum Fangelsismálastofnunar hafa sinnt föngum sem gista fangageymslur lögreglunnar vegna rannsóknar mála, ölvunar eða af ýmsum öðrum ástæðum og þá hefur Fangelsismálastofnun getað hagað mönnun með þeim hætti á næturnar að um lágmarksmannafla hefur verið að ræða þar sem lögreglumaður hefur alltaf verið á vakt í húsnæðinu á sama tíma.
Ef ákvörðun um að loka fangelsinu á Akureyri verður ekki afturkölluð munu að jafnaði tveir af fimm lögreglumönnum á vakt á Akureyri sinna fangavörslu flesta daga ársins. Ákvörðunin mun því að óbreyttu kalla á stóraukið fjármagn til löggæslu á Norðurlandi eystra en að öðrum kosti skerðist löggæsla á svæðinu svo um munar. Þá má ætla að sá stuðningur sem lögreglustöðvar utan Akureyrar hafa af lögreglunni á Akureyri verði í lágmarki.
Byggðarráð vill einnig benda á að verði ákvörðuninni ekki snúið munu aðstæður íbúa á Norðurlandi eystra sem þurfa að afplána dóma versna til muna með tilliti til þess að geta átt í samskiptum við fjölskyldur sínar.
Byggðarráð telur með öllu ólíðandi að Fangelsismálastofnun geti í trássi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda í byggðamálum og án samráðs við sveitarstjórnir á svæðinu tekið slíka ákvörðun um að flytja 5 störf af landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið og með því sett löggæslu á svo stóru svæði landsins í algjört uppnám.
Byggðarráð skorar á dómsmálaráðherra að afturkalla ákvörðunina.

 


Athugasemdir

Nýjast