Býður sig fram í 2. og 3. sæti á lista Framsóknarflokksins

Helgi Héðinsson.
Helgi Héðinsson.

Helgi Héðinsson hefur ákveðið að bjóða sig fram á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi og sækist þar eftir 2. til 3. sæti. Í tilkynningu segir Helgi  að meginástæða þess að hann gefi kost á sér nú er óbilandi trú hans á þeirri vegferð sem Framsóknarflokkurinn hefur verið á, sér í lagi á líðandi kjörtímabili.

„Vegferð samvinnu, uppbyggingar og umbóta sem knúin er áfram af fólki með hugsjónir. Mér líður eins og ég geti lagt þeim málstað lið, en ekki síður að þar sé vettvangur góðra verka sem ég vil fylgja fast eftir. Síðustu ár hef ég unnið af krafti sem oddviti Skútustaðahrepps. Þar hef ég í góðum hópi fólks starfað eftir hugmyndafræði sem ég er ákaflega stoltur af. Hugmyndafræðin byggir á því að styrkja stoðir samfélagsins með hamingju og vellíðan fólksins að leiðarljósi. Leiðirnar að hamingjunni eru æði mismunandi og að mörgu þarf að huga sem ég tíunda ekki að fullu hér. Öll viljum við hins vegar búa við sanngjörn tækifæri til að skapa okkur lífsviðurværi.

Við viljum njóta lífsgæða og lífsfyllingar. Við viljum hafa aðgengi að menntun og heilsugæslu. Við viljum hugsa vel um umhverfið okkar og njóta menningar og lista. Við viljum verja meiri tíma með vinum og fjölskyldu og við viljum að þeir sem starfa í okkar þágu geri það af heilindum og með almannahag að leiðarljósi. Við viljum fá aðstoð þegar við leitum eftir henni vegna veikinda, hvort sem þau eru líkamleg eða á andlega sviðinu. Þetta er það sem ég brenn fyrir,“ segir m.a. í tilkynningu frá Helga.


Athugasemdir

Nýjast