Með þessu nýja húsnæði getum við boðið upp á mun betri þjónustu. Fyrirtækið hefur stækkað og dafnað mikið á undanförnum árum og þess vegna var nauðsynlegt að ráðast í að byggja þetta hús við Grímseyjargötu á Akureyri, segir Guðmundur Guðmundarson. Búvís flytur inn ýmsar rekstrarvörur sem notaðar eru í landbúnaði.
Rúlluplastið er nokkuð stór liður í rekstrinum, svo og áburður og alls konar vörur sem bændur þarnast. Þeir hafa tekið okkur afskaplega vel, enda kappkostar Búvís að veita góða þjónustu á hagstæðu verði. Ég er sannfærður um að með þessu húsnæði hérna á Akureyri getum við staðið okkur enn betur, segir Guðmundur.
karleskil@vikudagur.is