Búvís í nýtt húsnæði

Guðmundur Guðmundarson  Mynd/Karl Eskil
Guðmundur Guðmundarson Mynd/Karl Eskil

„Með þessu nýja húsnæði getum við boðið upp á mun betri þjónustu. Fyrirtækið hefur stækkað og dafnað mikið á undanförnum árum og þess vegna var nauðsynlegt að ráðast í að byggja þetta hús við Grímseyjargötu á Akureyri,“ segir Guðmundur Guðmundarson.  Búvís flytur inn ýmsar rekstrarvörur sem notaðar eru í landbúnaði.

„ Rúlluplastið er nokkuð stór liður í rekstrinum, svo og áburður og alls konar vörur sem bændur þarnast. Þeir hafa tekið okkur afskaplega vel, enda kappkostar Búvís að veita góða þjónustu á hagstæðu verði. Ég er sannfærður um að með þessu húsnæði hérna á Akureyri getum við staðið okkur enn betur,“ segir Guðmundur.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast