Um 1.400 íbúðir í byggingu eða undirbúningi

Undanfarin ár hefur uppbyggingin íbúða mest verið  í Holta- og Móahverfi, þar sem hundruð íbúða hafa…
Undanfarin ár hefur uppbyggingin íbúða mest verið í Holta- og Móahverfi, þar sem hundruð íbúða hafa þegar risið eða eru í byggingu. Mynd akureyri.is

„Staðan er góð hvað varðar framboð lóða á Akureyri og við erum þegar farin að huga að frekari úthlutunum, bæði í Móahverfi og á þeim lóðum sem eftir eru í Holtahverfi. Um 1.200 íbúðir eru nú í byggingu eða á lóðum sem nýlega hefur verið úthlutað, auk um 200 íbúða sem eru í undirbúningi á eldri lóðum, þótt óljóst sé hvenær framkvæmdir hefjast þar,“ segir Sunna Hlín Jóhannesdóttir formaður skipulagsráðs Akureyrarbæjar.

Mest byggt í Móa- og Holtahverfi

Minnisblað skipulagssviðs um stöðu mála varðandi uppbyggingu íbúða á Akureyri var lagt fram á fundi ráðsins nýverið. Þar kemur fram að mikill vöxtur hefur verið í byggingum íbúða í bænum undanfarin ár. Um 1.400 íbúðir eru ýmist í byggingu eða á lóðum sem þegar hefur verið úthlutað. Um 1.200 eru í fjölbýli og tæplega 200 í rað-, par- eða einbýlishúsum í byggingu, á lóðum sem búið er að úthluta eða lóðum sem geta farið í úthlutun.

Mest er uppbyggingin í Holta- og Móahverfi, þar sem hundruð íbúða hafa þegar risið eða eru í byggingu. Þá eru lóðir fyrir fjölmargar nýjar íbúðir tilbúnar til úthlutunar. Einnig er unnið að skipulagi og undirbúningi nýrra fjölbýlishúsa á svæðum á borð við Tjaldsvæðisreit, Hofsbót, Austursíðu og Gleráreyrar.

Mætir þörfinn næstu 7 til 8 ár

Samkvæmt áætlunum ætti sú uppbygging sem nú er í gangi og undirbúningi að mæta íbúðaþörf bæjarins næstu sjö til átta árin. Miðað við íbúaþróun sem hefur verið talsverð, gæti þó þurft að hefja undirbúning nýs hverfis um árið 2030 að því er fram kemur í minnisblaði.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir formaður skipulagsráðs Akureyrarbæjar

„Þó að staðan sé góð megum við hvergi slaka á,“ segir Sunna Hlín og bætir við að undirbúningur sé að hefjast að skipulagi nýs hverfis vestan Kjarnagötu, slík vinna taki óhjákvæmilega tíma. „Þar ætlum við að vanda vel til verka og horfa sérstaklega til þess að byggja fyrir ólíka hópa samfélagsins og mæta þeirri eftirspurn sem markaðurinn kallar eftir. Það er auðvitað erfitt að sjá nákvæmlega fyrir hvernig húsnæðismarkaðurinn þróast mörg ár fram í tímann og þess vegna skiptir máli að skipulagið sé sveigjanlegt og geti tekið breytingum eftir því sem þarfirnar breytast.“

Nýjast