Bleiki dagurinn er í dag en hann er til að sýna samstöðu með krabbameinssjúkum og vekja athygli á baráttunni gegn krabbameinum. Dagurinn er hápunktur árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands, Bleiku slaufunnar, sem stendur yfir í október.
Starfsfólk hjá Flugvernd og Fríhafnar á Akureyrarflugvelli lét sitt ekki eftir liggja í gær eins og sjá má að samfélagsíðum þeirra á meðfylgjandi mynd og texta sem hér kemur:
,,Þar sem engin flug eru á dagskrá hjá okkur í dag ákváðum við í Flugvernd og Fríhöfn á Akureyrarflugvelli að halda upp á Bleika daginn í gær. Starfsfólkið klæddist bleiku í flugi dagsins til að sýna samstöðu með þeim sem hafa greinst með brjóstakrabbamein."