Búnaðarsamband Eyjafjarðar kannar nú hvort bændur nái hagstæðari kaupum á rafmagni með því að láta bjóða sameiginlega í þau. Tæplega 70 bændur hafa áhuga á að vera með og verður að líkindum óskað eftir tilboðum í nálægt 6 gígawattstundir sem eru í notkun hjá þessum hópi.
Sigurgeir Hreinsson framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar segir alla söluaðila rafmagns hafa möguleika á að selja hvar sem er í dreifbýli, en RARIK sér um dreifinguna hver svo sem selur rafmagnið. Verið er að senda út bréf til þeirra fyrirtækja sem geta selt rafmagn í Eyjafirði og verðum þeim boðið að bjóða í viðskiptin.