15. apríl, 2010 - 12:57
Fréttir
Brotist var inn í um 10 bíla á bílastæðinu við flugstöðina á Akureyrarflugvelli í fyrrinótt. Rúður voru brotnar
í bílunum og einhverju stolið úr þeim og þá leikur grunur á að bensíni hafi einnig verið stolið af bílunum, samkvæmt
upplýsngum lögreglu.
Málið er óupplýst en í rannsókn og biður lögreglan þá sem urðu varir við mannaferðir á svæðinu á
þessum tíma að hafa samband.