Brjóta blað í upplýsingagjöf til ferðalanga um Ísland

Arnheiður Jóhannsdóttir.
Arnheiður Jóhannsdóttir.

Markaðsstofur landshlutanna, MAS, ýttu í dag úr vör samstarfsverkefni sem miðar að því að auðvelda og hvetja enn frekar til ferðalaga innanlands. Um ræðir gagnvirkt vefsvæði, www.upplifdu.is , þar sem notendum gefst kostur á að sníða ferðalagið nákvæmlega eftir sínu höfði og fá aðstoð við að sjá hvað er í boði á hverjum stað, fá nákvæma tímaáætlun milli áfangastaða og síðast en ekki síst, uppgötva nýja möguleika á myndrænan hátt. Verkefnið er liður í að auka á dreifingu ferðamanna um landið sem og styðja við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs. Þetta er langstærsta verkefni sem MAS hefur ráðist í, segir í tilkynningu. Verkefnið ber yfirskriftina Upplifðu og segir í tilkynningu að þetta sé stafræn bylting þegar kemur að skipulagningu ferðalaga um Ísland sem og einstök upplýsingagátt. Allar sex markaðsstofur landshlutanna, Markaðsstofa Vesturlands, Markaðsstofa Vestfjarða, Markaðsstofa Norðurlands, Austurbrú, Markaðsstofa Reykjaness og Markaðsstofa Suðurlands sameinast í verkefninu. 

Sjá hvaða tækifæri allir landshlutar hafa upp á að bjóða“

„Lengi hefur verið kallað eftir aðgengilegri lausn þar sem auðveldlega er hægt að sjá hvaða tækifæri allir landshlutar hafa upp á að bjóða og því frábært að geta nú ýtt þessu verkefni úr vör með stuðningi úr Sóknaráætlunum landshlutanna,” segir Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. „Verkefnið var fyrst ætlað erlendum markaði en stóraukin eftirspurn Íslendinga eftir áreiðanlegum upplýsingum um ferðatækifæri varð til þess að ákveðið var að byrja á að setja síðuna í loftið á íslensku en í haust mun sama kerfi fara í loftið á ensku.“ Upplifðu.is brýtur þar með blað í sögu upplýsingagjafar til ferðalanga um Ísland en ekki eru fordæmi fyrir viðlíka gagnvirkri síðu með jafn yfirgripsmiklar upplýsingar á fjölmörgum sviðum ferðaþjónustu á Íslandi. Þróun og framleiðsla er í höndum framleiðslustofunnar Tjarnargötunnar og er myndefnið sem prýðir síðuna unnið úr einum stærsta myndabanka sem gerður hefur verið úr efni frá Íslandi.

Auka dreifingu ferðamanna um landið

„Þessi opnun kerfisins er aðeins fyrsta útgáfa og verður stöðugt hægt að bæta við myndefni og upplýsingum eftir þörfum. Ferðaþjónustan hefur staðið þétt saman að ýmsum markaðsverkefnum í gegnum árin og hefur aldrei verið mikilvægara en nú í ár enda ljóst að mikinn kraft þarf til þess að byggja ferðaþjónustuna hratt upp aftur. Þetta kerfi er mikilvægur hlekkur í  að vekja athygli á áhugaverðum ferðamannastöðum um allt land og auka þannig dreifingu ferðamanna um landið,” segir Arnheiður. 

 


Athugasemdir

Nýjast