Breytingar á póstþjónustu á Kópaskeri-Frétttatilkynning

Póstbox hafa sannað ágæti sitt.
Póstbox hafa sannað ágæti sitt.

Póstþjónusta á Íslandi hefur á síðustu árum tekið stórfelldum breytingum. Fjöldi bréfasendinga hefur dregist saman um 74% frá árinu 2010 en á sama tíma hafa pakkasendingar margfaldast. Pósturinn leggur áherslu á að aðlagast hratt og örugglega og kappkostar að þróa þjónustu sína í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda.

 

Um miðjan janúar 2023 hyggst Pósturinn gera breytingar á póstþjónustu á Kópaskeri. Þar stendur til að loka pósthúsinu en leggja þess í stað meiri þunga á aðrar þjónustulausnir. Pósturinn vill upplýsa viðskiptavini sína um þessar fyrirhuguðu breytingar tímanlega. Dreifibréf með öllum nánari upplýsingum um breytingarnar verður dreift til íbúa þegar nær dregur.

 

,,Það hefur dregið verulega úr eftirspurn eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa á sama tíma og notkun annarra þjónustulausna fer sívaxandi. Viðskiptavinir gera auknar kröfur um sveigjanleika og einfaldar sjálfsafgreiðslulausnir. Þessu ákalli hefur Pósturinn svarað með nýjungum á borð við póstbox. Póstboxin okkar hafa verið mjög vinsæl, enda er þar bæði hægt að sækja og senda, hvenær sem viðskiptavinum hentar. Ánægðustu viðskiptavinir okkar eru einmitt þeir sem nota póstbox,“ segir Kjartan Flosason, forstöðumaður pósthúsa hjá Póstinum, og bætir við að um þessar mundir leiti Pósturinn að staðsetningu til að koma glænýju póstboxi fyrir á Kópaskeri.

 

Kjartan segir lokanir vissulega alltaf erfiðar. „Ég er svo gott sem fæddur og uppalinn á pósthúsi; ólst upp á pósthúsinu á Bíldudal og svo fluttumst við fjölskyldan á efri hæð pósthússins í Búðardal. Ég hóf svo formlega störf hjá Póstinum fyrir tvítugt og hef unnið þar nær alla tíð síðan. Þess vegna skil ég vel að svona lokanir séu sárar fyrir marga í nærsamfélaginu en á sama tíma gera breyttir tímar kröfu um breytta þjónustu sem við verðum víst að laga okkur að.“

 

Hann segir ennfremur að samspil póstbox, póstbíls, bréfbera og landpósts muni sjá neytendum á svæðinu fyrir póstþjónustu í takt við breyttar áherslur.

 

„Pósturinn er ekki að fara neitt, enda ætlum við okkur að sjálfsögðu að halda áfram að veita góða þjónustu. Póstkassarnir verða á sínum stað og endursöluaðilar munu sjá til þess að hægt verði að nálgast frímerki. Auk póstboxins, þar sem hægt er að sækja og senda pakka, mun landpóstar svo halda áfram að sjá um dreifingu. Bílstjórarnir okkar verða að sjálfsögðu á vaktinni til að sinna heimkeyrslu auk þess að afhenda og sækja pakka sem ekki komast í póstbox. Þá keyrum við heim til viðskiptavina, án endurgjalds. Póstbílarnir verða eins konar pósthús á hjólum. Viðskiptavinir geta einfaldlega slegið á þráðinn og bílstjórinn sér um rest,“ segir Kjartan að lokum.

 

Með einföldum hætti geta viðskiptavinir skráð sig á Mínar síður á vef Póstsins eða sótt appið. Þar er hægt að stjórna sendingarmöguleikum og skrá kreditkort til að senda pakka í póstbox ásamt því að nýta ýmsar aðrar lausnir sem stytta bið, lækka gjöld og bæta þjónustu við viðskiptavini enn frekar. 

 

Íbúum á svæðinu verða send dreifibréf með frekari upplýsingum um breytingarnar þegar nær dregur. Á posturinn.is má finna ítarefni og upplýsingar um fjölbreyttar þjónustulausnir Póstsins. Auk þess er alltaf velkomið að hafa samband við þjónustuver í síma 580 1000 eða á netspjallinu við köttinn Njál á posturinn.is

 

 


Athugasemdir

Nýjast