Bretar kynna sér norðlenska matarhefð

Síðustu daga hefur hópur Breta verið á ferðalagi um Norðurland til að kynnast matargerð, framleiðslu og öðru sem tengist mat í norðlenskri ferðaþjónustu. Hópurinn samanstendur af fagfólki í ferðaþjónustu sem tengist matarupplifun og fengu þau einnig að kynnast menningu og sögu landshlutans.

Hópurinn fékk kynningu á verkefninu Taste North Iceland og matarstígunum Matarkistan Skagafjörður, Matarstígur Helga magra og Taste Mývatn.

„Þetta er fyrsta stóra heimsóknin sem við fáum eftir að heimsfaraldurinn skall á og því sérstaklega ánægjulegt að geta boðið hópinn velkominn til okkar. Hluti þeirra kom hingað í kynnisferð árið 2015 þar sem fólk frá Bretlandi kom til að kynna sér norðlenska matarferðaþjónustu og tók þátt í North Iceland Local Food Festival. Nú er enn stærri hópur á ferð eða 25 manns og bera þau norðlenskum mat og ferðaþjónustu góða sögu. Við viljum þakka þeim Karen Donnelly  og Jackie Ellis hjá Tourism Angles fyrir gott samstarf,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Verkefnið er stutt af Erasmus+ og unnið í samstarfi við Tourism Angles og Markaðsstofu Norðurlands. Markmiðið er að auka þekkingu þátttakenda, hæfni og styrkleika þeirra til þess að bæta þeirra ferðaþjónustu. Hópurinn samanstendur af bæði leiðbeinendum og starfsmönnum, sem hittist í umhverfi sem gefur þeim tækifæri til að læra nýja hluti, kynnast bestu aðferðum sem í boði eru og læra af jafningum. Tækifærið til þess að kynnast því besta sem evrópsk ferðaþjónusta hefur upp á að bjóða eykur svo gildi verkefnisins til muna.


Athugasemdir

Nýjast