Boranir hafnar í Hörgársveit

Fyrir helgina hófust jarðhitarannsóknir í Hörgárdal og Öxnadal á vegum Hörgársveitar og Norðurorku hf. með stuðningi Orkusjóðs. Fræðileg umsjón með verkefninu er í höndum  Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR). Áætlað er að bora 15-20 svonefndar hitastigulsholur víðs vegar um svæðið. Markmiðið með þeim er að leita að hitastigulshámarki, sem síðar væri hægt að skoða nánar með það í huga að staðsetja djúpa holu.

Verktaki er Ræktunarsamband Flóa og Skeiða. Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki fyrir áramót, en hugsanlegt er að boranir standi yfir fram í janúar. Svo skemmtilega vildi til að í síðustu viku, þegar fyrsta holan var boruð, voru liðin nákvæmlega þrjú ár frá því að viðræður hófust við Norðurorku um stækkun hitaveitukerfisins á þessu svæði. Þetta kemur fram á vef Hörgársveitar.

Nýjast