Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin hefur nú gefið út bókina Hamfarir á Haiti þar sem segir frá þessum
björgunarleiðangri í máli og myndum. Á um 120 blaðsíðum er undirbúningur sveitarinnar, aðdragandi að útkallinu og
útkallið sjálft rakið á ljóslifandi hátt. Í tilefni útgáfunnar var Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin
með kynningu á bókinni og sveitinni í Smáralind í gær og ræddi þar við gesti og gangndi um störf sveitarinnar. Meðlimir
Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar munu svo standa vaktina í Smáralindinni alla helgina og m.a. sýna hluta af búnaði
sínum; tjöld, rústabjörgunarbúnað, fjarskiptabúnað og nýjustu viðbót sveitarinnar,leitarhunda, fyrir framan verslunina
Útilíf á efri hæð Smáralindar.
Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur óskiptur til uppbyggingar á Íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni en öflug
rústabjörgunarsveit nýtist ekki bara erlendis heldur einnig hér heima þar sem rústabjörgunar er þörf, t.d.þegar snjóflóð
falla á byggð eða jarðskjálftar verða.
Bókin er gefin út af Slysavarnafélaginu Landsbjörg og er höfundur hennar Kristín Elva Guðnadóttir.