Blómleg Hríseyjarhátíð hefst á morgun

Mynd: Akureyri.is
Mynd: Akureyri.is

Hríseyjarhátíðin hefst á morgun, fimmtudaginn 7. júlí kl. 17, en hátíðin fer fram í júlí ár hvert. Boðið er upp á fjölskylduvæna dagskrá alla helgina og eru öll velkomin.

"Fastir liðir eins og venjulega" eru á sínum stað: Garðakaffið og óvissuferðir á föstudeginum. Á laugardag verður kaffisala kvenfélagsins á hátíðarsvæðinu, leiktæki fyrir börnin, skemmtun á sviðinu, ratleikur og hópakstur traktora. Um kvöldið verður kvöldvaka, brekkusöngur og varðeldur.

Fyrsta hátíðin var haldin árið 1997 og hefur hún verið árlegur viðburður síðan. Það er Ferðamálafélag Hríseyjar sem stendur að hátíðinni.

Ferjan Sævar siglir til Hríseyjar allt að níu sinnum á dag. Siglingin tekur aðeins 15 mínútur frá Árskógssandi, sem er um 35 kílómetra frá Akureyri. Nánari upplýsingar um Hrísey, ferjuáætlun og þjónustu má nálgast á www.hrisey.is og hægt að skoða dagskrá hátíðarinnar hér.

Spáð er ágætu veðri fyrir helgina og vonast er til að sem flestir leggi leið sína út í Hrísey til að njóta dagskrár hátíðarinnar og alls þess sem þessi einstaka eyja hefur upp á að bjóða.

Aðgangur á hátíðina er ókeypis og öll velkomin.

Hríseyjarhátíð


Athugasemdir

Nýjast