Björgunarsveitin Garðar sótti slasaðann vélsleðamann

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Björgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Húsavík var kölluð út eftir hádegi í dag vegna vélsleðamanns sem féll af sleða sínum og slasaðist ofan Höskuldsvatns á Reykjaheiði.

Björgunarsveitamenn hlúðu að vélsleðamanninum á slysstað og bjuggu síðan um hann í snjótroðara frá skíðasvæði Húsvíkinga sem fenginn var á vettvang. Snjótroðarinn ók með þann slasaða til móts við sjúkrabíl sem flutti hann á sjúkrahús.

Nýjast