Bjórböðin valin Sproti ársins

Viðurkenningshafar á uppskeruhátíðinni.
Viðurkenningshafar á uppskeruhátíðinni.

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi fór fram í Mývatnssveit nýverið þar sem árlegar viðurkenningar Markaðsstofu Norðurlands voru veittar. Að þessu sinni fékk fyrirtækið unga, Bjórböðin frá Árskógssandi viðurkenningu sem Sproti ársins. Viðurkenningin Sproti ársins er veitt ungu fyrirtæki sem hefur skapað eftirtektarverða nýjung í ferðaþjónustu á Norðurlandi.

Í flokknum Fyrirtæki ársins varð Gauksmýri í Húnaþingi vestra fyrir valinu. Viðurkenningin er veitt fyrirtæki sem er búið að slíta barnsskónum og hefur skapað sér sterka stöðu á markaði. Fyrirtækið hefur unnið að stöðugri uppbyggingu, vöruþróun og nýsköpun og er með höfuðstöðvar á Norðurlandi.

Að lokum fékk Ólöf Hallgrímsdóttir í Vogafjósi, Mývatnssveit, viðurkenningu fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi.  Viðurkenninguna fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi fær einstaklingur sem hefur haft góð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi í heild sinni og hefur starfað beint eða óbeint fyrir ferðaþjónustu á svæðinu, segir í tilkynningu.

 

Nýjast