Birkir Blær heldur tónleika á LYST laugardaginn 30. mars

Birkir Blær heldur tónleika á LYST annað kvöld 30 mars  og hefjast þeir kl 20.30  Myndir aðsendar
Birkir Blær heldur tónleika á LYST annað kvöld 30 mars og hefjast þeir kl 20.30 Myndir aðsendar

Birkir Blær heldur tónleika á LYST laugardaginn 30. mars kl 20:30. Hann mun flytja blöndu af nýju og gömlu efni ásamt vel völdum ábreiðum. Hann mun einnig syngja glænýtt lag sem kemur í dag 29 mars, daginn fyrir tónleikana!

Nýja lagið heitir Leaders og fjallar um hvernig leiðtogar heimsins láti stjórnast af græðgi í stað þess að beita sér umhverfismálum og hunsi hlýnun jarðar. Lagið sjálft, ef þú tekur allt út nema gítar og söng myndi flokkast sem “soul” en útsetningin er með mikinn innblástur frá allskonar tónlist, t.d. eru bassi og trommur í hiphop stíl og rafmagnsgítarinn svolítið rokkaður og syntharnir í einhverskonar r&b stíl. Þannig kannski smá erfitt að flokka en ætli maður myndi ekki kalla þetta “alternative-soul” eða eitthvað svoleiðis

 Þeir sem komu að laginu: Lag: Birkir Blær Texti: Birkir Blær og Pétur Már Guðmundsson Útsetning: Birkir Blær og Hreinn Orri Óðinsson Hljóðblöndun: Sæþór Kristjánsson Master: Glenn Schick Um Birki:

Birkir Blær er 24 ára tónlistarmaður frá Akureyri en hann hefur verið búsettur í Stokkhólmi undanfarin ár. Hann er söngvari, lagasmiður, hljóðfæraleikari og pródúsent. Hann vill ekki festa tónlistina sína í einum ákveðnum flokki, heldur fær hann innblástur úr öllum áttum en allra helst frá soul, blues og r&b. Birkir er reyndur tónlistarmaður, hann hefur haldið ótal tónleika og komið fram í útvarpi, sjónvarpi og á tónlistarhátíðum. Hann hefur gefið út tónlist sem hefur nú verið streymt tæplega 6 milljón sinnum á Spotify.

 Hann er sennilega þekktastur fyrir að hafa unnið sænsku Idol keppnina árið 2021. Birkir starfar nú sem tónlistarmaður bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Hægt er að fylgja Birki Blæ á öllum samfélagsmiðlum og tónlistarveitum hér: https://birkirblaer.fanlink.tv/birkirblaer

 Miðaverð á tónleikana á LYST er  3500 kr., miðasala: https://lyst.is/vidburdir/birkir-blaer-paskatonleikar/

Nýja lagið Leaders má svo heyra hér https://open.spotify.com/album/1vJJbxQwE1edbd3nTwzuhV?si=I77PcB0FQz6oncq3cU_L7g&fbclid=IwAR1bsD9EZqvNcAHLVPvXOoH4HDAR_qAmh06xpDfC6OaZa4xFf4U1esq6nYA_aem_AU_qfaA6q7fh89Y3sD7wtaCAAjIcZ2Qq4XDMbvw2wV6nIpv7WDfdU2d8ZlcSERCLZNPtDDVFY3iYGLwcoZqwjye8&nd=1&dlsi=ffc7d1c09b88409d


Athugasemdir

Nýjast