Steingrímur segir að með hækkandi eldsneytisverði skipti sparneytni bílanna sífellt meira máli og þar komi Volkswagen Golf og Skoda Octavia sterkir inn. „Bókanir fyrir sumarið benda til þess að eftirspurn eftir bílaleigubílum verði meiri í ár en í fyrra. Síðasta ár var gott og nú sjáum við fram á aukningu, þannig að við getum ekki verið annað en bærilega sáttir," segir Steingrímur. Alls verða á milli 2200 og 2300 bílaleigubílar í rekstri hjá Bílaleigu Akureyrar í sumar og er starfsmönnum bílaleigunnar fjölgað úr 70 í um 100 yfir sumarmánuðina.
„Við hjá HEKLU höfum átt mikil og góð viðskipti við Bílaleigu Akureyrar árum saman og þess vegna er það okkur mikið ánægjuefni að geta innsiglað áframhaldandi samstarf með jafn myndarlegum samningi og nú liggur fyrir," segir Knútur G. Hauksson, forstjóri HEKLU. Hann segir að eftirlit og öll umhirða bílaleigubílanna hafi alla tíð verið til fyrirmyndar hjá Heldi og því sé alltaf mikil eftirspurn eftir notuðum bílum frá Bílaleigu Akureyrar þegar þeir komi aftur á markaðinn.