Bílabraut malbikuð

Bíladagar hefjast í vikunni og er að vænta talsverðs fjölda fólks í bæinn ef aðsókn verður svipuð og verið hefur. Það nýmæli verður á bíladögum í ár að hluti formlegrar dagskrár verður haldinn á akstursvæði Bílaklúbbs Akureyrar í Glerárdal og þar standa nú framkvæmdir yfir. Í morgun var verið að malbika bílabraut rétt neðan við bæinn Glerá en þar verður haldin Burn-out keppnin og einnig Drift að þessu sinni.

Nýjast