Benedikt býður sig fram í Norðausturkjördæmi

Benedikt Jóhannesson
Benedikt Jóhannesson

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, býður sig fram í fyrsta sæti fyrir flokkinn í Norðausturkjördæmi í þingkosningum í haust. Hann mun því ekki bjóða fram  Reykjavík þar sem hann býr nú. Þetta kom fram í viðtali við Benedikt á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.

Benedikt segir að ástæðuna fyrir því að flokkurinn vilji hafa sterka frambjóðendur í öllum kjördæmum sé að þeir hugsi Ísland  sem eina heild „en ekki sem borgríki gegn landsbyggðinni. Og þannig verðum við að hugsa sem alvöru stjórnmálaflokkur.“

Í gær var birt ný skoðanakönnun Gallups um fylgi  flokkanna. Þar mælist Viðreisn nú með tæplega 11 prósenta fylgi.  Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra, lagði í gær fram frumvarp  um að núverandi löggjafarþingi ljúki 29. október. Og þar með virðist það ljóst að Alþingiskosningar verða þann dag.

 

Nýjast