Beint fá Akureyri til borga í Bretlandi

Mynd af heimasíðu Ferðaskrifstofu Akureyrar.
Mynd af heimasíðu Ferðaskrifstofu Akureyrar.

Ferðaskrifstofa Akureyrar, í samstarfi við bresku ferðaskrifstofuna Superbreak, hefur hafið

sölu á flugferðum beint frá Akureyrarflugvelli til Bretlands.

Áfangastaðirnir eru alls fjórir; London, Manchester, Liverpool og York. Flogið er með breska

flugfélaginu Titan Airways.

Hægt er að bóka flug á ýmsum dagsetningum frá desember 2018 og út mars 2019.

 

Ferðaskrifstofa Akureyrar býður upp á ýmsar pakkaferðir í tengslum við flugin. Þá hefur ný

heimasíða verið sett á laggirnar þar sem hægt er að skoða ferðamöguleika og bóka ferðir

eða stök flugsæti. Þegar nær dregur er ekki útilokað að fleiri ferðadagar og pakkar bætist við.

 

Ragnheiður Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Akureyrar  segir í tilkynningu að ferðaskrifstofan hafi verið í samskiptum við Superbreak varðandi þann möguleika að selja flugsæti frá Akureyri fyrir heimamarkað. Ferðaskrifstofa Akureyrar býður nú í haust helgarferðir til Dublin og Róm ásamt ferðunum til Bretlands.

„Við finnum fyrir mikilli eftirspurn frá heimafólki eftir beinum ferðum frá Akureyri og reynum

að gera okkar besta í að þjónusta markaðinn með það að leiðarljósi að vera samkeppnishæf í

verði,“ segir Ragnheiður.“

Nánari upplýsingar um ferðirnar má nálgast á heimasíðunni www.aktravel.is .

 

 

 

Nýjast