Bakkasystur bjóða í vöfflukaffi

Bakkasystur eru þær Anna Maria Kowalska, Eva María Hilmarsdóttir, Ragnhildur Halla Bjarnadóttir, Sig…
Bakkasystur eru þær Anna Maria Kowalska, Eva María Hilmarsdóttir, Ragnhildur Halla Bjarnadóttir, Sigríður Sólan Guðlaugsdóttir og Sædís Ágústsdóttir. Mynd/SSNE

Laugardaginn 25. júní næstkomandi kl. 15-17 bjóða Bakkasystur ehf. í vöfflukaffi í Hafnarvoginni á Bakkafirði sem staðsett er við Bjargið fiskvinnslu. Þar munu þær kynna starfsemi og markmið fyrirtækisins, en í húsinu verður komið á fót sögusýningu um lífið á Bakkafirði á síldarárunum. Systurnar kynna fyrstu drög að því þennan dag. Greint er frá þessu á vef SSNE

Bakkasystur eru þær Anna Maria Kowalska, Eva María Hilmarsdóttir, Ragnhildur Halla Bjarnadóttir, Sigríður Sólan Guðlaugsdóttir og Sædís Ágústsdóttir. Allar eiga þær tengingu við bæinn, en Anna María og Sædís eru búsettar á Bakkafirði. Fyrirtækið býður upp á markaðsþjónustu og ráðgjöf.

„Við erum fullar bjartsýni á að okkur takist að skapa fleiri störf, sérstaklega fyrir konur sem búa á Bakkafirði eða nágrenni. Þetta er langtímaverkefni og við miðum að því að bjóða upp á öfluga þjónustu á ýmsum sviðum fyrir Norðausturland í framtíðinni,“ segir Eva María.

Fyrirtækið hlaut nýverið styrk upp á 1,5 milljónir króna frá verkefninu Atvinnumál kvenna á vegum Vinnumálastofnunar til að auka markaðsþjónustu á svæðinu, þá hefur Anna Maria einnig fengið styrk úr Frumkvæðissjóði Betri Bakkafjarðar sem ungur Bakkfirðingur. Sögusýningin í Hafnarvoginni fékk einnig úr sömu úthlutun, að frumkvæði Birgis Ingvarssonar, og er sögusýningin jafnframt eitt af þeim frábæru verkefnum sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði NE 2022.


Athugasemdir

Nýjast