Bærinn leigir stúdentaíbúðir

Akureyrarbær hefur ákveðið að taka á leigu 10-12 íbúðir hjá Félagsstofnun Stúdenta við Háskólann á Akureyri, FÉSTA, í allt að 5 ár. Bærinn mun síðan endurleigja þessar íbúðir til að grynnka á biðlistaum eftir leiguhúsnæði hjá bænum. Þannig munu almennar leiguíbúðir hjá bænum verða inni á stúdentagörðum. FÉSTA hefur byggt undanfarin ár nýjar íbúðir og hefur nokkuð verið um að framboð stúdentaíbúða sé umfram eftirspurn. Með þessum samningi mun því létta á þrýstingi hjá FÉSTA um leið og biðlistar bæjarins eftir leiguhúsnæði munu styttast.

Nýjast