Bæjarstjórn Akureyrar fundaði með dómsmálaráðherra og fangelsismálastjóra

Lögreglustöðin á Akureyri.
Lögreglustöðin á Akureyri.

Bæjarstjórn Akureyrar fundaði með dómsmálaráðherra, fangelsismálastjóra, nýjum lögreglustjóra Norðurlands eystra og bæjarstjóra Akureyrarbæjar nú í morgun vegna fyrirhugaðrar lokunar fangelsisins á Akureyri. Eins og fram hefur komið stendur til að loka fangelsinu á Akureyri í lok júlí en þar eru vistaðir 8-10 fang­ar að jafnaði. 

Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, greinir frá þessu í Facebookfærslu og hún segist sé svekkt með fundinn.

„Stundum fara af stað heiftúðlegar umræður í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum sem einkennast af hálfkveðnum vísum og röngum upplýsingum, en síðan þegar fólk sest niður og talar saman þá eykst skilningurinn manna á milli og myndin skýrist. Sú varð því miður ekki raunin í morgun. Ég varð enn svekktari eftir fundinn en fyrir hann, ferlið er í raun ekkert annað en óboðlegt. Ekkert samráð var haft við lögregluembættið hér né bæjarstjórn, gögnin takmörkuð og framtíðarsýnin ekki sannfærandi. Svo virðist sem fangelsismálin hafi verið skoðuð einangrað án þess að horfa til samlegðaráhrifa við starf lögreglunnar hér og hvað þá að tillit væri tekið til byggðasjónarmiða. Það er gömul saga og ný að óvinsælar ákvarðanir eru teknar í júlí þegar flestir eru í sumarfríum og vilja frekar hlusta á fossanið og fuglasöng en að pirra sig á pólitík. Það er ekki nóg með að ákvörðunin sé kynnt í byrjun júlí og eigi taka gildi í lok júlí, heldur var á þeim tíma var ekki búið að ráða nýjan lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, hún tók til starfa í gær!“

Hilda Jana segist þó binda vonir við að dómsmálaráðherra hætti við þessa ákvörðun, „eða a.m.k fresti henni og nýti tímann til að fara faglega og heilstætt yfir málið. Ég tel nokkuð ljóst að engin sátt verði um þessi málalok.“

"Vonandi sér dómsmálaráðherra að sér"

Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrar, tjáir sig einnig um fundinn í Facebookfærslu og segir hreinskiptar umræður hafa farið fram á fundinum, "og ég er enn sannfærðari eftir fundinn að ákvörðun þessi er illa ígrunduð. Samráð og samtal við lögreglustjóraembættið og bæjaryfirvöld var ekkert fyrir ákvörðunartöku og heildaráhrif og hagræðing engan veginn ljós. Vonandi sér dómsmálaráðherra að sér og dregur þessa ákvörðun til baka eða a.m.k. frestar henni á meðan heildarmyndin er skoðuð," skrifar Guðmundur Baldvin.


Athugasemdir

Nýjast