Bæjarráð styrkir Landsmót skáta að Hömrum í sumar

Landsmót skáta 2008 fer fram að Hömrum í sumar og á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var samþykkt að styrkja mótshaldið um 1,5 milljónir króna. Oddur Helgi Halldórsson sat hjá við afgreiðslu málsins. Fyrir bæjarráði lá fyrir erindi frá Birgi Björnssyni mótsstjóra og Þorsteini Fr. Sigurðssyni framkvæmdastjóra BÍS f.h. Landsmóts skáta 2008, þar sem óskað var eftir fjárhagslegum stuðningi Akureyrarbæjar við mótið. Erindið var áður á dagskrá bæjarráðs sl. haust en þá var bæjarstjóra falið að funda með forsvarsmönnum mótsins.

Nýjast