08. febrúar, 2008 - 13:14
Fréttir
Bæjarráð Akureyrar samþykkti bókun á fundi sínum í gær, þar sem tekið er heils hugar undir þingsályktunartillögu
um staðsetningu björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Með staðsetningu þyrlu á Akureyri er öryggi sjófarenda á
hafsvæðinu fyrir norðan og austan land aukið til muna. Auk þess gegna þyrlur Landhelgisgæslunnar nú mikilvægu hlutverki við björgun á
landi og þar getur fjarlægð frá slysstað ráðið úrslitum um það hvernig til tekst. Á Akureyri er góð reynsla af
sjúkraflutningum og FSA er varasjúkrahús landsins.
Það er því ljóst að hér er gott bakland til að styðja við þessa starfsemi. Bæjarráð skorar því á
alþingismenn að styðja þingsályktunartillöguna og ríkisstjórnina að koma henni til framkvæmda. Eins og fram hefur komið hafa níu af
tíu þingmönnum í Norðausturkjördæmi og úr öllum flokkum lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um
þyrlubjörgunarsveit á Akureyri.