Bæjarráð ósátt með samgöngur við Grímsey

Sæfari      Mynd  akureyri.is
Sæfari Mynd akureyri.is

Á fundi bæjarráðs Akureyrar  i morgun var ma rætt um samgöngur við Grímsey en Sæfari ferjan sem siglir á milli lands  og eyja fór i slipp  þann 17 mars og  er enn þar.  Bergþóra Kristinsdóttir framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar  og Halldór Jörgensson forstöðumaður hjá Vegagerðinni mættu á fund bæjarráðs í gegnum fjarfundarbúnað og fóru yfir stöðu mála varðandi samgöngur til og frá Grímsey.   Eins sat María H. Tryggvadóttir verkefnastjóri ferðamála hjá Akureyrarbæ fundinn undir þessum lið einnig  í gegnum fjarfundarbúnað.

Bæjarráð bókar um málið ,, Bæjarráð Akureyrar lýsir yfir vonbrigðum með þjónustu Vegagerðarinnar við íbúa Grímseyjar. Ítrekaðar seinkanir hafa orðið á viðgerð Grímseyjarferjunnar Sæfara og skort hefur á viðvarandi flug meðan á henni stendur. Þetta þýðir mjög skerta þjónustu við eyjarskeggja og bitnar harkalega á ferðaþjónustunni í eyjunni sem reiðir sig algjörlega á sumarmánuðina í rekstri. Bæjarráð skorar á Vegagerðina að bæta upplýsingagjöf til farþega, bæði á íslensku og ensku, fjölga flugferðum og tryggja hagstæð flugfargjöld meðan á viðgerðum á ferjunni stendur.“


Athugasemdir

Nýjast