B, D, S og M- listar hefja formlegar viðræður á Akureyri

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Samfylkingar og Miðflokks á Akureyri funduðu nú í kvöld um möguleika þessa að mynda með sér meirihluta í sveitarstjórn. Þetta kemur fram í tilkynningu sem oddvitar flokkanna sendu frá sér rétt í þessu.

Á fundinum var rætt um áherslur allra og kom í ljós að mikill samhljómur væri meðal fundarmanna í öllum helstu málum. Voru aðilar því sammála um að ástæða væri til þess að hefja formlegar viðræður þar sem áhersla verður lögð á farsæld barna, barnafjölskyldna, fólks í viðkvæmri stöðu og eldra fólks.

Auk þess voru aðilar sammála um að leggja áherslu á umhverfis- og loftslagsmál, mannréttindi og velferð íbúa, öflugt skólastarf sem og metnaðarfull og fagleg skipulagsmál.  Þá segir að alli raðilar muni gefa sér góðan tíma til þess að vinna málefnasamning og skipta með sér verkum.


Athugasemdir

Nýjast