Auglýsa sérstaklega eftir konum til starfa

Hallað hefur á hlut kvenna hjá Slökkviliði Akureyrar sem leitar að konum til starfa.
Hallað hefur á hlut kvenna hjá Slökkviliði Akureyrar sem leitar að konum til starfa.

Störf hjá tveimur stofnunum Akureyrarbæjar hafa verið auglýst til umsóknar þar sem sérstaklega er auglýst eftir kvenfólki til starfa, annars vegar hjá Slökkviliði Akureyrar og hins vegar Umhverfismiðstöð.

Fram kemur á vef Akureyrarbæjar að þetta sé gert á grundvelli 26. greinar laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Einnig er vísað til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í störf.

„Reynt er að forðast það að til verði karla- eða kvennavinnustaðir en verulega hefur hallað á hlut kvenna hjá umhverfismiðstöð og Slökkviliði Akureyrar og því er nú auglýst sérstaklega eftir konum til starfa á þesum stöðum,“ segir á vef Akureyrarbæjar.

Slökkvilið Akureyrar óskar eftir að ráða konur í störf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í afleysingar. Um er að ræða afleysingastörf vegna sumarleyfa starfsmanna 2018 við sjúkraflutninga, slökkvistörf og önnur almenn störf slökkviliðsins. Gera má ráð fyrir 5-7 mánaða starfstíma. 

Umhverfismiðstöð auglýsir eftir konum í fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf við fegrun bæjarins og umhirðu bæjarlandsins en þá er átt við götur og gangstéttir, garða og opin svæði.

Nýjast