Auga fyrir auga í Mjólkurbúðinni

Sjónlistasýningin Auga fyrir Auga opnar í dag í Mjólkurbúðinni-Sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri. Listakonurnar Jonna og Karólína sýna þar ýmis verk sem unnin hafa verið á undanförnum mánuðum þar sem augað er viðfangsefni sýningarinnar og verða bæði málverk og þrívíð verk til sýnis.

Gestum gefst einnig kostur á að skyggnast inn í heim blindra og sjónskertra með gleraugum sérútbúnum til að túlka ýmsar sjónskerðingar og fá þannig tækifæri til að skoða sýninguna með öðrum augum.

Listakonurnar Karólína Baldvinsdóttir og Jonna/Jónborg Sigurðardóttir eru báðar blindar á öðru auga og er það innblástur sýningarinnar. Sýningin verður opin kl 14-17 25.,26. og 30.maí og 1. og 2. júní.

 


Athugasemdir

Nýjast