Atvinnurekendur á Húsavík óánægðir

Húsavík.
Húsavík.

Atvinnurekendur á Húsavík og nærsveitum hafa komið óánáægju sinni á framfæri við stéttarfélögin með að illa gangi að ráða í störf þrátt fyrir mikið atvinnuleysi. Þetta á bæði við um sláturhúsin, ferðaþjónustufyrirtæki og fiskvinnslur. Dæmi eru um að fyrirtæki í ferðaþjónustu hafi gefist upp við að auglýsa eftir starfsfólki þar sem engir hafi sótt um störfin. Fyrirtækin hafa því þurft að leita út fyrir landssteinanna í leit að starfsfólki.

„Að sjálfsögðu á enginn að vera á atvinnuleysisbótum bjóðist honum starf við sitt hæfi. Ekki síst í ljósi þessa er mikilvægt að efla starfsemi Vinnumálastofnunnar sem ætlað er meðal annars að miðla fólki í vinnu. Núverandi ástand er ekki boðlegt atvinnulífinu. Undir það tekur Framsýn stéttarfélag en málið var til umræðu á stjórnarfundi félagsins á fimmtudaginn,“ segir á tilkynningu á vef Framsýnar.

-epe


Athugasemdir

Nýjast