01. desember, 2017 - 12:47
Fréttir
Merkingar frá átakinu eru komnar á strætisvagna bæjarins. Mynd/Akureyri.is
Forvarna- og félagsmálafulltrúar Akureyrarbæjar hafa undanfarið unnið að nýju lýðheilsuverkefni sem er meðal annars kynnt með auglýsingum á strætisvögnum bæjarins. Verkefnið kallast "5 á dag". Það snýst um að kynna fyrir almenningi 5 einföld skref til að fylgja á hverjum degi og þannig stuðla að betri líðan. Markmiðið er að hvetja alla til að taka ábyrgð á og stuðla að eigin geðheilsu.
Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.
„Undanfarin misseri hefur talsvert verið rætt um að geðheilsa, sérstaklega á meðal barna og ungmenna, fari versnandi og að skortur sé á úrræðum í þeim málaflokki. 5 á dag er átak sem allir geta tileinkað sér í heilsueflandi samfélagi,“ segir á vef Akureyrarbæjar.
Skrefin eru í stuttu máli:
- Tölum saman: Átt þú í samskiptum við fólkið í kringum þig? Fjölskyldu, samstarfsmenn, nágranna, vini, heima, í vinnunni, skólanum, samfélaginu þínu?
- Verum virk: Stundar þú reglulega hreyfingu? Göngum, hjólum, syndum, skíðum, förum stigann, leikum okkur.
- Verum í núinu: Nýtur þú augnabliksins? Verum þakklát, verum meðvituð um umhverfi okkar, hugsanir okkar, tilfinningar og líkama okkar og heiminn í kringum okkur.
- Upplifum: Ferð þú út fyrir þægindarammann? Lærum allt lífið, upplifum eitthvað nýtt, setjum okkur markmið, látum drauma okkar rætast.
- Gefum af okkur: Ert þú þátttakandi í samfélaginu? Verum örlát, hrósum, gerum eitthvað fallegt fyrir ættingja, vini eða ókunnuga.
Verkefnið er styrkt af frístundaráði og SVA