Árs- og uppskeruhátíð BLÍ verður haldinn á morgun, laugardag, í Fagralundi í Kópavogi í umsjón blakdeildar HK. Þar verður kjöri á bestu og efnilegustu leikmönnum karla og kvenna lýst ásamt því að lið ársins verður tilkynnt. Einnig eru veitt verðlaun fyrir stigahæstu leikmenn í sókn, hávörn og uppgjöfum auk þess sem stigahæsti leikmaður samtals fær verðlaun.
KA- fólk er fyrirferðarmikið í tilnefningum í bæði karla- og kvennaflokki. Í karlaflokki hlaut KA sex tilnefningar en í kvennaflokki fimm tilnefningar. Hér fyrir neðan má sjá þrjú efstu sætin í kjörinu í öllum flokkum.
Karlar
Besti leikmaðurinn
Piotr Kempisty, KA
Emil Gunnarsson, Stjarnan
Filip Szewzyk, KA
Efnilegasti leikmaðurinn
Orri Þór Jónsson, HK
Daníel Sveinsson, KA
Geomar M. Orbon, Stjarnan
Besti uppspilarinn
Ingólfur Hilmar Guðjónsson, HK
Sævar Már Guðmundsson, Þróttur R
Filip Szewzyk, KA
Besti frelsinginn
Árni Björnsson, KA
Arnar Smári Þorvarðarson, Stjarnan
Reynir Árnason, HK
Besti þjálfarinn
Róbert Karl Hlöðversson, Stjarnan
Zdravko Demirev, HK
Marek Bernat, KA
Konur
Besti leikmaðurinn
Hulda Elma Eysteinsdóttir, KA
Miglena Apostolova, Þróttur Nes
Birna Baldursdóttir, KA
Efnilegasti leikmaðurinn
Auður Anna Jónsdóttir, KA
Hjördís Eiríksdóttir, Stjarnan
Helena Kristín Gunnarsdóttir, Þróttur Nes
Besti uppspilarinn
Íris Eva Einarsdóttir, Þróttur Nes
Una Margrét Heimisdóttir, KA
Kristín Salín Þórhallsdóttir, HK
Besti frelsinginn
Steinunn Helga Björgólfsdóttir, HK
Sesselja Fanneyjardóttir, KA
Kristina Apostolova, Þróttur Nes
Besti þjálfarinn
Brynjar Pétursson, Ými
Apostol Apostolov, Þróttur Nes
Emil Gunnarsson, Stjarnan
Besti dómarinn
Leifur Harðarson
Sævar Már Guðmundsson
Stefán Jóhannesson