10. mars, 2011 - 11:39
Fréttir
Flutningabifreið og fólksbíll skullu saman í vestanverðu Víkurskarði um tíuleytið í morgun. Veginum var lokað vegna
óhappsins fram eftir morgni, á meðan verið var að koma bílunum af vettvangi. Gunnar Jóhannesson hjá lögreglunni á Akureyri segir að
engin slys hafi orðið á fólki, en aðstæður í Víkurskarði verið mjög erfiðar. Blindbylur var þar og 10 stiga frost,
þannig að erfitt var að athafna sig á svæðinu.