Áramótabrennum aflýst á Akureyri

Mynd/Akureyrarbær.
Mynd/Akureyrarbær.

Ákveðið hefur verið að halda ekki áramótabrennur á vegum Akureyrarbæjar að þessu sinni sökum aðstæðna í þjóðfélaginu vegna Covid-19. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Fjöldi manns hefur alla jafna safnast saman við Réttarhvamm á Akureyri og notið áramótabrennu og flugeldasýningar. Nú þegar fjöldatakmarkanir miðast við 10 manns er ekki annað hægt en að fella niður viðburðinn. Sama gildir um brennur í Hrísey og Grímsey. 

"Þetta er í samræmi við ákvarðanir margra annarra sveitarfélaga, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu, enda er mikilvægt að sveitarfélög og aðrir opinberir aðilar gangi fram með góðu fordæmi, sýni ábyrgð í verki og hvetji ekki til hópamyndunar," segir í frétt bæjarins.


Athugasemdir

Nýjast